Kína 2009 Alþjóðleg frímerkjasýning var haldin í hinni söguríku og menningarlegu Luoyangborg í Henan fylki í miðaustur hluta Kína frá 10. til 16. apríl 2009. Þetta er í annað sinn sem haldin er alþjóðleg frímerkjasýning í Kína.
Höfuðborg í 1529 ár Luoyangborg teygir sig meðfram báðum bökkum Gulafljóts með fallegu landslagi af iðagrænum fjöllum og tindrandi tæru vatni. Borgin á fimmþúsund ára sögu og er ein af þeim sjö borgum í Kína sem hefur verið forn höfuðborg. Hún var fyrsta forna höfuðborgin í samfellt 1529 ár. Luoyangborg er þekkt fyrir það að silkikaupmenn hófu ferð sína í vesturátt með varning sinn frá borginni, í dag búa þar um sex milljónir manna. Eins er borgin þekkt fyrir mikla rósarækt, bóndarósina, sem er skrautblóm af sóleyjarætt. Samt mjög frábrugðin okkar holtasóley, með mjög stór rauð blóm, sem bera sig vel. Bóndarósin er þjóðarblóm í Kína og borgarblóm Luoyang. Hún hefur vaxið á þessu svæði frá því um eittþúsund árum fyrir Krist. Eitt tákn sýningarinnar var einmitt mynd af bóndarós og um leið og frímerkjasýningin var haldin, þá var líka haldin Bóndarósahátíð í 27. sinn á þessum stað. Þá ríkir svo sannarlega hugtakið að sýna vináttu með blómum. Hver dagur sýningarinnar hafði sitt þema sem kom fram á stimplum sýningarinnar.
Vígslusýning nýrrar sýningarhallar Sýningin var haldin í nýrri marmarasýningarhöll og var höllin vígð með þessari alþjóðlegu frímerkjasýningu. Luoyang Museum er 62 þúsund fermetra og var reist af þessu tilefni og eins voru gerðir nýir vegir, byggðar brýr, reist stór hótel til að gera aðstæður sem bestar. Sýningin og öll umgjörð hennar var framúrskarandi vel gerð og skipulögð og ekkert til sparað og má segja að Olympíuleikarnir í Peking frá árinu 2008 hafi verið fyrirmyndin. Setning fór fram á stórum íþróttavelli, eins og þá og þar var mikið um dýrðlegar ljósasýningar og frábær skemmtiatriði. Við slit sýningar var gullverðlaunahöfum afhentir verðlaunapeningar með því að hengja þá formlega um háls þeirra, ekki ósvipað og afhending íþróttamedalía fer fram. Öll löndin innan Federation of International Philately (FIP) eða Alþjóðlegra samtaka frímerkjasafnara, sem eru 84 alls tóku þátt og er það í fyrsta skipta sem það gerist. Sýningargestir urðu yfir 600.000 og sýndir voru fleiri en 3.200 rammar af frímerkjasöfnum. Á meðal sjaldgæfra frímerkja má nefna Penny Black frímerki bresku konungsfjölskyldunnar og Red Revenue frímerki frá Kína.
Frímerki hafa fylgt mannkyninu um langa tíð og eiga sér sína sögu er kemur að miðlun og mannlegum samskiptum í gegnum aldir. Margir líta frímerki menningarsögulegum augum og sem safngripi. Sýningar af þessum toga eru því ekki einungis yfirlit um sögu frímerkisins og ákveðinn þátt í sögu mannlegra samskipta og tengsla heldur styrkja þær samskipti fólks og þjóða á sama hátt og aðrir fjölþjóðlegir viðburðir.
Heimsmet slegin
Fern verðlaun til Íslands |