Árið 1977 varð að veruleika samstarf Landssambandsins og Félags frímerkjasafnara (FF) um útgáfu sameiginlegs málgagns, sem gæti orðið frímerkjasöfnun hér á landi til framdráttar (Segja má að þetta samstarf hafi verið grunnurinn að inngöngu FF í Landssambandið). Hið nýja málgagn hlaut nafnið Grúsk og
undirheitið Tímarit safnara. Af tímariti þessu komu út 23 tölublöð og er þar að finna mikinn fróðleik, sem enn er í fullu gildi. Í þeirri ritnefnd sem hleypti Grúski af stokkunum sátu þeir Hálfdan Helgason, Jón Aðalsteinn Jónsson og Sigurður H. Þorsteinsson.Það var svo gæfa Landssambandsins að ná samkomulagi árið 1998 við Íslandspóst um útgáfu nýs tímarits um frímerki og frímerkjasöfnun. Stóð undirbúningur um nokkurt skeið og var vilji beggja að vanda vel til verka. Fyrstu ritnefnd þessa nýja málgagns Landssambandsins, sem hlaut nafnið Frímerkjablaðið, skipuðu af hálfu safnara þeir Hálfdan Helgason, Sveinn Ingi Sveinsson og Þór Þorsteins. Er óhætt að fullyrða að blað þetta er í flokki glæsilegustu frímerkjatímarita, allt litprentað og vel vandað til alls efnis. Er blaðinu dreift til allra félagsbundinna frímerkjasafnara auk þess sem Íslandspóstur sendir öllum áskrifendum sínum blaðið þeim að kostnaðarlausu.
Núverandi ritnefnd skipa Sigurður R. Pétursson, sem jafnframt er ritstjóri og ábyrgðarmaður, Hálfdan Helgason, Hrafn Hallgrímsson, Kjartan J. Kárason og Sveinn Ingi Sveinsson.