5. október 2010 Gull, gull í Portúgal! Á alþjóðlegu frímerkjasýningunni
Portugal 2010, sem nú stendur yfir í Lissabon taka þátt tveir úr röðum íslenskra frímerkjasafnara, þeir
Árni Gústafsson og
Sigtryggur R. Eyþórsson. Er skemmst frá því að segja að söfn beggja hlutu gullverðlaun. Hlaut safn Árna,
Íslenskur skipspóstur, 90 stig og safn Sigtryggs,
Íslenskur heilpóstur 1879-1920, 91 stig. Er þetta glæsilegur árangur og er þeim hér með óskað til hamingju og vonandi hvetur frammistaðan aðra safnara til dáða.
Umboðsmaður sýningarinnar af hálfu LÍF er Sigurður R. Pétursson.
30. maí 2010 Átta íslenskir safnarar tóku þátt í Norrænu frímerkjasýningunni
NORDIA 2010 sem nú er afstaðin. Vegna fyrri afreka var safn
Árna Gústafssonar í Meistaradeild sýningarinnar ásamt sjö öðrum stórsöfnurum. Þátttakendur í þessum flokki hlutu allir gullverðlaun. Aðrir íslenskir þátttakendur voru (í Póstsögudeild):
Rúnar Þór Stefánsson, 89 stig + heiðursverðlaun (stórt gyllt silfur),
Hjalti Jóhannesson, 87 stig (stórt gyllt silfur),
Sverrir Helgason, 81 stig (gyllt silfur),
Brynjólfur Sigurjónsson, 78 stig (stórt silfur),
Sveinn Ingi Sveinsson, 77 stig (stórt silfur) og
Magnús Sigurðsson, 72 stig (silfur). Í Opnum flokki hlaut
Páll A. Pálsson 80 stig + heiðursverðlaun (gyllt silfur).
LÍF-vefurinn óskar þessum söfnurum öllum til hamingju með árangurinn.
23. maí 2010 Guli skildingurinn sænski skipti um eigendur á lokuðu uppboði sem fram fór hjá David Feldman í Sviss þann 22. maí, s.l. Hjá uppboðsfyrirtækinu er því haldið fram að um sé að ræða verðmætasta frímerki heims, en síðast þegar það var selt, árið 1996, fékkst fyrir það 2,875 milljónir svissneskra franka, sem mun vera um 320 milljóna króna. Ekki fæst uppgefið verð merkisins að þessu sinni.
Smellið í merkið til að fá stærri mynd.
18. maí 2010 Alþjóðlegu frímerkjasýningunni
London 2010 er nýlokið.
Aðeins einn íslenskur safnari tók þar þátt,
Árni Gústafsson, sem hlaut 88 stig - stórt gyllt silfur - fyrir safn sitt af íslenskum skipspósti.